Dan the man var e-ð að tala um að það þyrfti að lífga við þessa
síðu og hér sit ég og reyni að leggja mitt af mörkum
sit hér aðgerðarlaus
hundurinn minn hann moli var með vandamál í pengs, eitthvað æxli
er mér skilst sem fjarlægt var og hann geldur í leiðinni, ekki nema
7 ára gamall greyið, og ég á í vangaveltum um það hvort þetta hafi
verið krabbamein (l. cancer testilis)
læknirinn fjarlægði reyndar mest allt þannig að það er hægt að
horfa bjartsýnum augum á þetta, en greyið er eitthvað máttvana og
vill bara vera einn undir rúmi undanfarið
hvernig var helgin?
jújú föstudagurinn var hægur, mest tjill bara, en á
laugardeginum var kíkt í 2 misgóð party og drukkið og hlegið og
dansað og svo fékk maður að sjá tatas þannig að það var í góðu
hvað gerðuð þið, endilega tjáið ykkur
og
hvert um verzlunarmannahelgina?
ég persónulega nenni ekki til eyja, þar sem þjóðhátíðartónlist
sker svo í eyrun á mér og það eru 90% líkur á roki og
rigningu og 8 gráðu hita til að kóróna það, svo ég tali nú
ekki um að ég fékk nóg af tjaldsukki á hróarskeldu
þannig að Akureyri er líklegasti kosturinn
tjáið ykkur um það, enga feimni
leiter